Beint á leiðarkerfi vefsins

Félag íslenskra félagsliða

Félag íslenskra félagsliða

Siðareglur félagsliða

Siðareglur Félags íslenskra félagsliða

 

Starf félagsliða felst í að efla félagslega virkni, á heilbrigðis-, félags- og menntunarsviði. Veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklingsins eru hafðar að leiðarljósi. Skjólstæðingar félagsliða eru oftast einstaklingar eða hópar sem vegna röskunar á þroska, veikinda, öldrunar eða áfalla þurfa á stuðning og þjónustu að halda.

 

1.       Félagsliði rækir störf sín af alúð, samviskusemi, trúmennsku og án þess að fara í manngreiningarálit vegna færniröskunar, kynþáttar, menningar, trúarbragða, aldurs, kynferðis, kynhneigðar, þjóðfélagsstöðu eða stjórnmálaskoðana skjólstæðinga sinna.

2.       Félagsliði gætir fyllstu þagmælsku um þau mál sem hann kann að verða áskynja í starfi sínu. Undartekning frá þagnarskyldu má einungis gera með leyfi skjólstæðings eða samkvæmt lagaboði.

3.       Félagsliði vinnur í nánu samstarfi við skjólstæðinga sína, virðir þekkingu þeirra og reynslu og tekur mið af þörfum þeirra, færni og aðstæðum.

4.       Félagsliði vinnur af heilindum og heiðarleika í öllu starfi með hagsmuni skjólstæðinga sinna að leiðarljósi.

5.       Félagsliði leitar samráðs við viðeigandi aðila telji hann að á rétt skjólstæðings sé gengið. Hann stuðlar að því í samvinnu við aðrar stéttir að skjólstæðingur (eða aðstandendur hans) sé upplýstur um rétt sinn.

6.       Félagsliði leitast við að styðja skjólstæðinga sína við að finna eigin styrkleika í félags- og tómstundamálum og við daglegar athafnir.

7.       Félagsliði leggur sitt af mörkum við að rjúfa félagslega einangrun skjólstæðings síns og stuðlar að heilsuvernd.

8.       Félagsliði gætir virðingar stéttar sinnar innan sem utan vinnustaðar.

9.       Félagsliði skal aldrei ræða með lítilsvirðingu um skjólstæðinga sína, samstarfsmenn eða vinnustað.

10.    Félagsliði ræktar samvinnu við samstarfsstéttir og gagnrýnir þær ekki í áheyrn skjólstæðinga.

 

Félagsliðar skulu kynna sér ákvæði reglna þessara og leitast við að fylgja þeim í starfi. Telji félgasliði að samstarfsaðili vinni gegn hagsmunum skjólstæðings ber honum skylda til að tilkynna það viðeigandi aðila, hafi ábendingar og viðræður ekki borið árangur.

 


Til félagsmanna

14. Janúar 2010

Lyfta óvirk í BSRB húsi

Þessa dagana er verið að endurnýja lyftuna í BSRB húsinu. Áætluð verklok eru 29. janúar.

25. September 2009

SFR blaðið

Septemberhefti SFR blaðsins hefur nú verið dreift til félagsmanna. Meðal efnis að þessu sinni er niðurstöður launakönnunar SFR 2009, dagskrá Gott að vita  námskeiðanna, kjarasamningur félagsins, fréttir af orlofsmálum, svo eitthvað sé nefnt. SFR blaðið er einnig á rafrænu formi hér á síðunni.
SFR6tbl2009web

21. Apríl 2009

MUNUM 1. MAÍ

Dagskrá 1. maí í Reykjavík

Safnast saman á Hlemmi frá kl. 13.00 – 13.30.  Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar verða með slagverkskonsert þar til gangan leggur af stað. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur hefja göngu niður Laugarveginn kl. 13.30. Á leið göngunnar niður Laugarveginn verða örræður fluttar. Ræðumenn leggja út af ávarpi dagsins.
Göngunni lýkur á Austurvelli þar sem baráttufundurinn verður haldinn.


 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English