Beint á leiðarkerfi vefsins

Til félagsmanna FÍF

14. janúar 2010

Lyfta óvirk í BSRB húsi

Þessa dagana er verið að endurnýja lyftuna í BSRB húsinu. Áætluð verklok eru 29. janúar.

25. september 2009

SFR blaðið

Septemberhefti SFR blaðsins hefur nú verið dreift til félagsmanna. Meðal efnis að þessu sinni er niðurstöður launakönnunar SFR 2009, dagskrá Gott að vita  námskeiðanna, kjarasamningur félagsins, fréttir af orlofsmálum, svo eitthvað sé nefnt. SFR blaðið er einnig á rafrænu formi hér á síðunni.
SFR6tbl2009web

21. apríl 2009

MUNUM 1. MAÍ

Dagskrá 1. maí í Reykjavík

Safnast saman á Hlemmi frá kl. 13.00 – 13.30.  Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar verða með slagverkskonsert þar til gangan leggur af stað. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur hefja göngu niður Laugarveginn kl. 13.30. Á leið göngunnar niður Laugarveginn verða örræður fluttar. Ræðumenn leggja út af ávarpi dagsins.
Göngunni lýkur á Austurvelli þar sem baráttufundurinn verður haldinn.

21. janúar 2009

Starfsheitaskrá

Nú nýlega vorum við í sambandi við Hagstofu Íslands, um að taka upp í starfsheitaskrá sína starfsheitið félagsliði.  Ástæðan fyrir þessu er að þeir sem verða fyrir atvinnumissi og skrá sig hjá atvinnumálastofnun, lenda í því að starfsheitið félagsliði er ekki til inni í staðlaðri starfsheitaskrá, og því óljóst undir hvaða starfaflokk starfsheitið fellur. Atvinnumálastofnun fær sína starfsheitaskrá frá Hagstofu Íslands en starfsheitaskrá Hagstofunnar er sú sama og starfsheitaskrá Alþjóða vinnumálastofnunarinnar, en þó aðlöguð að íslensku atvinnulífi.

 

21. janúar 2009

Fyrsta námskeið vorannar fyrir félagsliða verður 29. janúar

Fyrsta námskeið vorannar fyrir félagsliða: Þunglyndi, kvíðaraskanir og lausnamiðuð meðferð byrjar 29. janúar. Skráning á www.framvegis.is 

16. desember 2008

NTV Office tölvunám og afsláttarkjör

BSRB og NTV standa í sameiningu að Office tölvunámi fyrir félagsmenn aðildarfélaga BSRB. Einnig fá félagsmenn 15% afslátt af öllum námskeiðum NTV.

6. nóvember 2008

Líðan þín í vinnunni á óvissutímum

- Hádegisfróðleikur 13.nóv.
Skráning stendur yfir á hádegisfróðleik...

14. október 2008

Stafgöngunámskeið - Drífum okkur út að ganga

Nokkur laus sæti á Stafgöngunámskeiði sem hefst 21. okt. kl. 18. Skráning HÉR!

13. júní 2008

SFR félagi tekur þátt í ljósmyndasýningu

Ljosbrot_litil.gif

Sigrún Kristjánsdóttir sem er trúnaðarmaður og starfs-maður hjá ÁTVR stendur fyrir ljósmyndasýningu Ljósbrots, ásamt 3 öðrum, í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur 7. - 22. júní.

1. júní 2008

Námsferð til Danmerkur

Námsferð Félagsliðabrautar í Borgarholtsskóla til Danmerkur árið 2007 var kynnt á fræðslufundi Félags íslenskra félagsliða. Sjá glærur HÉR.

Þú ert gestur nr. 34988 á vef Félags íslenskra félagsliða síðan 15. janúar 2007.

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English