Fréttir félagsliđar
10. desember 2009
Vafasamar breytingar á rekstri Landbúnađarháskólans
Í uppsiglingu eru deilur milli SFR og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri vegna aðgerða sem SFR telur að skólinn hafi staðið ólöglega að. Breytingarnar hafa m.a. haft í för með sér uppsagnir SFR félaga en þannig er að Landbúnaðarháskólinn hefur m.a. sinnt þeim skyldum að reka hefðbundin býli til að skapa skilyrði fyrir verklegri kennslu bústarfa við skólann. Nú hefur skólinn tekið sér það vald að færa þann búrekstur út úr hefðbundnum rekstri og stofna um hann sérstakt einkahlutafélag. Í kjölfar þessa var öllum starfsmönnum sem komu að búrekstrinum sagt upp og einungis hluti þeirra var endurráðinn og þá á allt öðrum og lakari starfskjörum.
9. október 2009
Vinnuverndarvika 19.-23. október
Vinnuverndarvika Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar árið 2009 verður 19.-23. október næstkomandi. Hún mun fjalla um áhættumat eins og vinnuverndarvikan seinasta ár. Í vinnuverndarátakinu verður sjónum beint að mikilvægi þess að gert sé áhættumat fyrir alla vinnustaði. Engin vinnustaður er í raun undanskilinn.
11. september 2009
Breyttur opnunartími á skrifstofu SFR
8. september 2009
Vantar kröftugan trúnađarmann á ţinn vinnustađ?
Nú stendur yfir kosning trúnaðarmanna á vinnustöðum SFR. Mikilvægt er að hafa trúnaðarmenn á öllum vinnustöðum, en í dag eru trúnaðarmenn 250 talsins. Hlutverk þeirra felst meðal annars í að gæta hagsmuna félagsmanna SFR á vinnustað, miðla upplýsingum á milli félagsmanna og SFR og gæta þess að kjarasamningar séu virtir. Hlutverkið er bæði fjölbreytt og gefandi og felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu, jafnt á persónulegum grunni sem og starfslega. Allir félagsmenn SFR geta boðið sig fram sem trúnaðarmenn. Kosning fer fram á vinnustöðum til 7. okt.
24. ágúst 2009
Fjölbreytt námsframbođ hjá Framvegis
19. ágúst 2009
Námskeiđ hjá Frćđslusetrinu Starfsmennt
10. júní 2009
Nýtt árgjald
Lagt var til að hafa árgjaldið eitt og hið sama yfir alla, nemendur sem og útskrifaða félagsliða. Ekki er hægt að halda greiðsluskrá svo að vel sé gert, þar sem félagsmenn í félagsliðanámi hafa eina upphæð en útskrifaðir aðra. Þetta eykur hættu á misfærslum og því er brugðið á það ráð að fara milliveginn og hafa eina árgjaldaupphæð sem er söm á alla.
Árgjaldið í ár er 3000.- kr., minna en mánaðaráskrift dagblaðs. Greiðsluseðlar verða sendir út fljótlega.
10. júní 2009
Lagabreyting
Á aðalfundinum 28. maí var lögð var fram svo hljóðandi lagarbreytingartillaga: „Lagt er til að grein 3.4 í lögum félagsins verði felld niður þar sem talið er að hún rekist á lagagreinar 3.3 og 3.5 og valdi ruglingi.“
Í eldri lögum félagsins, grein 3.4 stendur: „Félagsmaður sem ekki hefur greitt félagsgjald sitt í samtals tvö ár dettur sjálfkrafa út af félagaskrá.“
Grein 3.3 segir svo: „Félagar teljast aðeins með full félagsréttindi hafi þeir greitt félagsgjöld.“
Og í grein 3.5 stendur: „Úrsögn úr félaginu skal fara fram með skriflegri tilkynningu til stjórnar og öðlast hún þegar gildi.“
Tillaga þessi var samþykkt og eldri lagagrein 3.4 felld úr gildi, en eldri lagagrein 3.5 færist upp og verður að núverandi lagagrein 3.4.
10. júní 2009
Samantekt ađalfundar Félags íslenskra félagsliđa 28. maí 2009
Ýmislegt hefur verið gert á liðnu starfsári og skal þar fyrst nefna viðurkenningu á starfsheitinu okkar. Haldið var áfram að sækja um löggildingu eða sambærilega viðurkenningu á starfsheitinu félagsliði. Það gengur illa. Þrátt fyrir fundi og marg ítrekaðar fyrirspurnir, bæði til heilbrigðisráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins þá hefur ekkert gengið. Engin svör og hvorugt ráðuneytið hefur með afgerandi hætti ákveðið, hvort þeirra ætli að sjá um okkar mál.
17. maí 2009
Málţing um flutning ţjónustu viđ fatlađa frá ríki til sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga, samgönguráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið standa að málþingi um flutning þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga miðvikudaginn 20. maí 2009. Fundarstaður er Hilton Hótel Nordica og fundartími er frá kl. 10:00 til kl. 15:30. Markmið málþingsins er að leiða saman faghópa, sveitarstjórnarmenn, aðra hagsmunaaðila og áhugafólk um þjónustu við fatlaða og félagsþjónustu almennt og skapa vettvang til skoðanaskipta um framkvæmd tilfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga í samræmi við viljayfirlýsingu aðila frá 13. mars. 2009.









